Jæja félagar, þá er komið að því að kallinn láti til sín taka!!
Blogg á leiðinni. Þetta er nú búinn að vera rólegur tími hjá
kallinum á austurlandinu, bara búinn að vera að vinna í
Sparisjóðnum og í Egilsbúðinni um helgar og stundum á kvöldin. Það
er fínt, mar nær kannski að raka saman einhverjum peningum fyrir
næsta vetur.
Heyrru, ég ætla að taka út tvöþúsundkall heyrist allt í einu
eins og þruma úr heiðskíru lofti. Svona er þetta bara...
Partý í kvöld, staffapartý, verið að kveðja eina!! Gæti orðið
gaman og allt það...sjáum til. Verð þjónn í einhverri ægilegri
veislu á morgun, á Eskifirði!! Það gæti líka bara verið æðislegt.
Soldið gaman að þjóna í svona veislum. Sammi, ég skora á þig að
kíkja á www.gameknot.com og
skrá þig inn sem notanda. Þú sérð hvað þetta er um leið, soldið
gaman líka.
Skrítið að koma úr borginni í sæluna hér fyrir austan. Maður er
ekki nema eina mínútu í vinnuna, í staðinn fyrir 15-20 mín í
skólann á morgnanna. Leiðinlegur asi í borginni, og tekur langan
tíma að komast á milli staða.
Kosningabaráttan í Reykjavík er líka leiðinleg. Ekki talað um
annað en þennan helvítis flugvöll, sem á bara að vera þarna að mínu
mati, eða andskotans Sundabraut!!! Örugglega leiðnlegt að vera
pólitíkus í Reykjavík og þurfa stanslaust að segja það sama til að
troða þessu inn í hausinn á Reykvíkingum!!
Það er sæmilegt veður núna, en rólegur á slagviðrinu hérna á um
síðustu helgi. Menn reyndu að spila fótboltaleik á Eskifirði sem
var náttla bara grín. Markvörðurinn með skíðagleraugu og vesen.
Gaman samt að horfa á þetta!!
Hvað voru Hansel og félagar í blikunum að spá á móti Víkingunum
mar. 4-1 í Víkinni. Rótburst, annars verða blikar mitt lið í sumar.
Maður verður nú að halda með Ragnúsi!!
Get ekki beðið eftir HM. Það verður bara legið og horft á alla
þá leiki sem maður á möguleika á að horfa á. Englendingar eiga
eftir að skíta á sig eins og vanalega. Brassar vinna þetta til að
fullkomna tímabilið hjá besta knattspyrnumanni í heimi.
Strákar, ég vil að þið farið að spá í það af alvöru að koma
hingað á kempukvöld. Kallinn lofar því að taka vel á móti ykkur og
taka eina ógleymanlega helgi á austurlandinu. Fariði að ákveða
helgi, svo ég viti hvenær ég á að segja nei við vinnu og
solleis...þetta yrði geggjað!!
kveðja, Palli